Reykjavík 16. nóvember 2021

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Málræktarsjóði. Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur hans að:

a) að styrkja fjárhagslega nýyrða- og íðorðastarf í landinu,
b) að styrkja fjárhagslega starf orðanefnda sem vinna að þýðingum á tæknimáli eða
    sérhæfðu máli,

c) að styrkja fjárhagslega útgáfu handbóka og leiðbeininga um málnotkun,
d) að styrkja fjárhagslega útgáfu kennsluefnis í íslensku,
e) að styrkja fjárhagslega útgáfu orðabóka,
f)  að veita einstaklingum, samtökum og stofnunum viðurkenningu fyrir málvöndun og
    málrækt,

g) að styrkja með fjárframlögum hvers konar framtak sem verða má til þess að
    markmiðum Málræktarsjóðs verði náð.

Þeim sem óska eftir að sækja um styrk er bent á að hafa samband við Jóhannes B. Sigtryggsson, framkvæmdastjóra sjóðsins, í tölvupósti, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., og biðja um að fá sent umsóknareyðublað.

Umsóknum skal skila til framkvæmdastjóra eigi síðar en 16. janúar 2022 í tölvupósti, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..